Bátar í höfn á sjómannadaginn.
Dalvískir sjómenn á fyrri hluta síðustu aldar.
Mynd frá Dalvík frá árinu 1909. Húsið á bakkanum er Höfn sem stendur enn. Í dag er hátíðarsvæði Fiskidagsins mikla þar sem sjávarmálið er á myndinni og á uppfyllingu sem nær talsvert fram í sjóinn.
Fiskibók. Innlagður fiskur hjá m/b. Hannesi Hafstein.
Sýnishorn úr bókinni Innlagður fiskur....
Atvinnulíf í Dalvikurbyggð er æði fjölbreytt. Fiskvinnsla stendur þar traustum fótum og þar er eitt fullkomnasta fiskiðjuver heims sem Samherji hf rekur. Einnig eru nokkrar öflugar minni fiskvinnslur. Sæplast hf er viðurkennt
iðnfyrirtæki sem eflst hefur á Dalvík og er nú með starfsemi víða um heim. Dalvíkurhöfn er stór og umsvifamikil fiski- og
vöruhöfn og þaðan siglir ferjan Sæfari til Grímseyjar. Á Árskógssandi er einnig ferjuhöfn fyrir Hríseyjarferjuna Sævar.
Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá því að vélbáti var fyrst haldið til róðra hér í Eyjafirðinum. Það voru Björn Jörundsson í Hrísey og sonur hans Óli sem árið 1904 keyptu vélbát frá Danmörku, en þeir hófu ekki veiðar á honum fyrr en árið 1905. Hins vegar var það árið 1904 sem fyrst heyrðust mótorhljóð í bát á firðnum. Sá bátur gekk undir nafninu Skúlaskellir, en Skúli Einarsson útgerðarmaður á Ísafirði kom með hann vorið 1904 og var báturinn notaður til flutninga á Eyjafirði og ef til vill víðar. Í daglegur tali nefndi almenningur bátinn eftir útgerðarmanninum og svo eftir skellunum sem rufu kyrrðina á Eyjafirði þegar hann fór um.