Aðgangur óheimill

Forstöðumaður skjalasafns var að smyrja samloku sína í hádeginu, jafnframt því að hlusta á hádegisfréttir ríkisútvarpsins. Frétt kom um að smiðir hefðu við vinnu sína í gömlu húsi dregið fram einhver skjöl og sömuleiðis dagblöð breska setuliðsins á Íslandi sem lágu milli þilja. Viðtal var við smiðina, sem sögðu frá ýmsum sniðugum fréttum sem þeir hefðu lesið í dagblöðunum úr stríðinu og að jafnvel myndi fleira koma í ljós. Umræddur forstöðumaður sendi þegar starfsmann á vettvang til að kanna aðstæður og hvað um væri að ræða. Þegar á staðinn kom, tók á móti starfsmanni maður sem kynnti sig sem verkstjóra smiða á staðnum. Spurði hann hvort viðkomandi væri skjalavörður á skjalasafni X. Var honum tjáð að þegar hefðu komið á staðinn skjalaverðir frá skjalasafni Y og að öðrum skjalavörðum væri meinað að fara inn á svæðið. Varð starfsmaður skjalasafns X að fara til baka við svo búið og fréttist aldrei frekar af því hvað þar hefði fundist.

Svanhildur Bogadóttir
Borgarskjalasafni Reykjavíkur