Húsleit í miðbænum

Skjalavörður fékk ábendingu frá tveimur mönnum að kvöldi til um að frést hefði að í ákveðnu húsi í miðbæ Reykjavíkur væri að finna merk skjöl frá stjórnmálaflokki frá upphafi 20. aldar. Væru þau staðsett í geymslu undir súð og var tilgreint um hvaða hæð hússins væri að ræða.

Morguninn eftir var þegar haft samband við húsráðanda, sem kannaðist við málið og bauð starfsmann Borgarskjalasafns velkominn að kynna sér um hvaða skjöl væri að ræða. Þegar á staðinn var komið leiddi húsráðandi skjalavörðinn að umræddu herbergi og opnaði skápa undir súð. Þeir voru tómir, en pappírssnifsi enn að finna. Húsráðandi var sleginn og taldi að skjölin hlytu að hafa verið færð til. Ákveðið var að leita skipulega í húsinu frá risi og niður í kjallara. Sú leit bar engan árangur.

Í framhaldi af því var haft samband við aðila sem hafði undirbúið endurbætur á húsinu. Hann kannaðist strax við málið og sagði að hann hefði „mokað“ öllu þessu drasli á vörubíl og keyrt á hauga. Þar hvarf hluti af stjórnmálasögu 20. aldar og var það heldur niðurdreginn skjalavörður sem fór til baka til vinnustaðar síns.

Svanhildur Bogadóttir,
Borgarskjalasafni Reykjavíkur