Þjóðskjalasafn Íslands Borgarskjalasafn Reykjavíkur Héraðsskjalasafn Kópavogs Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar Héraðsskjalasafn Akranesskaupstaðar Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Héraðsskjalasafn Dalasýslu Héraðsskjalasafn Ísfirðinga Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Héraðsskjalasafn Siglufjarðar Héraðsskjalasafn Svarfdæla Héraðsskjalasafnið á Akureyri Héraðsskjalasafn Þingeyinga Héraðsskjalasafn Austfirðinga Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja Héraðsskjalasafn Árnesinga

Borgarskjalasafn Reykjavíkur

Borgarskjalasafn Reykjavíkur mun standa fyrir fjölbreyttri dagskrá í Kringlunni á Norræna skjaladaginn. Þar verður sýning á frumskjölum sem safnið varðveitir um íþróttir, heilsu og líkama. Getraun verður í boði fyrir gesti og von er á heimsókn nokkurra eldri íþróttafrömuða sem ætla að skoða sýninguna og rifja upp gamla tíma. Auk þess munu starfsmenn safnsins verða til staðar til þess að svara spurningum.

Kl. 10-18 Sýning á frumskjölum Borgarskjalasafns um íþróttir, heilsu og líkama.
Kl. 10-18 Getraun. Glæsilegir vinningar í boði.
Kl. 14-15 Gamlir íþróttamenn kíkja í heimsókn og rifja upp gamla tíma.
Á kynningardegi í Kringlunni 1998
Gestir skoða kynningarspjöld um Borgarskjalasafn Reykjavíkur í Kringlunni á kynningardegi skjalasafna 1998.


Á kynningardegi í Kringlunni 1998
Gestir taka þátt í getraun Borgarskjalasafns Reykjavíkur í Kringlunni á kynningardegi skjalasafna 1998.