Norræni skjaladagurinn

Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftafellinga
Skógum • 861 Hvolsvöllur
Opið: kl. 11:00 - 16:00

Þema dagsins: Fundargerðabækur félaga




Í tilefni norræna skjaladagsins heldur Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga sýningu í anddyri Samgöngusafnsins. Skjalasafnið býður gestum að sjá fundargerðabækur ýmissa félaga sem starfað hafa í héraðinu, svo sem búgreinafélaga, verslunarfélaga, kvenfélaga, líknarfélaga, ungmennafélaga og sveitarfélaga.

Auk þess verða sýnd handskrifuð blöð eða tímarit sem fóru mann frá manni um héraðið. Sýningin „Samgöngur á Íslandi“ verður opin gestum þennan dag. Heitt verður á könnunni.

Á Skógum er einnig hægt að skyggnast aftur í aldir á einu merkasta byggðasafni landsins þar sem meðal annars hafa verið endurbyggð mörg gömul hús.

Til baka