Þjóðskjalasafn Íslands



Þjóðskjalasafn Íslands
Laugavegi 162 • 105 Reykjavík • www.skjalasafn.is
Opið: kl. 11:00 - 16:00

Þema dagsins: Fjölbreytni félaga með áherslu á verslunarfélög



Þjóðskjalasafn býður almenningi að kynna sér starfsemi þess og njóta sýninga og leiðsagnar um skjalageymslur í tilefni skjaladagsins. Vegna 120 ára afmælis safnsins er meira um að vera á þessum degi en áður. Bæklingur og plakat í tilefni 400 ára afmælis einokunarverslunarinnar stendur gestum til boða og hér má skoða vefsýningu sem sett var upp af því tilefni.

Í Þjóðskjalasafni eru skjöl 500-600 félaga. Hér eru aðeins talin nokkur þeirra til að gefa hugmynd um fjölbreytileikann. Gögn frá þeim félögum, sem eru feitletruð, eru tekin til nánari umfjöllunar á sýningu á norræna skjaladeginum.

Þema norræna skjaladagsins árið 2001 var „Ást og umhyggja“ og hér má sjá sýnishorn af gögnum sem voru til sýnis í Þjóðskjalasafni af því tilefni.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Það verður heitt á könnunni.

Hér má sjá myndir frá norræna skjaladeginum í Þjóðskjalasafni.

Til baka