• Bræðrabúð á Sauðárkróki. Ljósmyndari óþekktur.
  • Síðustu leifar Bræðabúðar er skilti, sem varðveitt er í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.

Á Sauðárkróki voru afar margar verslanir á síðari hluta 19. aldar. Verslanirnar voru af ýmsum stærðum og gerðum. Ein sú minsta hét Bræðabúð. Bræðrabúð var reist árið 1886 sem íbúðarhús. Löngu síðar keypti Kristján Gíslason kaupmaður húsið og hafði þar kramvöruverslun sem hann kenndi við syni sína.

Þegar Ísland var hernumið af Bretum var húsið tekið sem birgðageymsla og voru þar geymdar ýmsar vörur, s.s. matvörur, áfengi og skotvopn. Að kvöldi 4. september 1940 gaus upp mikill eldur í Bræðrabúð. Ekki fékk slökkvilið staðarins að vinna að slökkvistarfi og var hervörður settur þegar eldar loguðu. Þegar húsið var fallið heyrðust skothvellir og drunur um allan bæ þegar skotfærin sprungu, við lítinn fögnuð bæjarbúa.

Þótt breska hernum hafi þótt það afar slæmt að missa við brunann vopn og verjur, þótti mörgum verra að í brunanum eyddust allar áfengisbirgðir setuliðsins. Glöggir bæjarbúar sáu harðnaða hermenn fella tár vegna þessa.

Eftir brunann var Bræðabúð að engu orðin og hefur ekkert varðveist af búðarmunum utan eitt fagurlega málað skilti, sem nú er í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga og á stendur: „Búðin er opin“.

Skömmu eftir brunann flaug fyrir vísa sem sumir eignuðu sýslumanni, Sigurði Sigurðssyni frá Vigur.

Ef eldana þeir auka hér
aftur - girnist hugur minn,
að þeir svíði undan sér
með íkveikjunni í næsta sinn.

Þegar Ólína Jónasdóttir skáldkona heyrði þessa vísu, varð henni að orði.

Þó að allt sé öfugt nú,
enn er samúð til í heim;
og ef að rætist óskin sú
einhver finnur til með þeim.

Heimildir:
  1. Kristmundur Bjarnason. Saga Sauðárkróks III. Sauðárkrókskaupstaður, 1973.
  2. Viðtöl við gamla Króksara.

Norræni skjaladagurinn 12. nóvember 2011