Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin varðveita söfn einkaskjala sem eru mörg hver merkilegar heimildir um einstaklinga og ýmsa þætti í íslenskri sögu. Einkaskjöl nefnast þau skjöl einu nafni sem ekki eru úr fórum opinberra stofnana og embætta eða annarra sem er skylt að skila skjölum til Þjóðskjalasafns eða héraðsskjalasafna. Aðallega eru þetta skjöl einstaklinga en skjöl félagasamtaka, sem ekki njóta opinberra styrkja, og skjöl fyrirtækja í einkaeigu teljast einnig til einkaskjala.
Einkaskjöl eru af ýmsu tagi, t.d. vottorð og skírteini svo sem fæðingar- og hjónavígsluvottorð, prófskírteini og ökuskírteini, dagbækur, teikningar, tónsmíðar og nótnahandrit, ljósmyndir, vinnugögn, úrklippur, minnisgreinar, eignaskjöl, samningar, einkabréf, handrit að hvers konar ritsmíðum, fundargerðabækur félagasamtaka og einkafyrirtækja, rekstrar- og bókhaldsgögn, alls kyns reikningar og þannig mætti áfram telja. Uppskriftir manna á skjölum og handritum annarra teljast einnig til einkaskjala.
Í Þjóðskjalasafni eru varðveitt nokkur hundruð einkaskjalasöfn og dágott safn einkaskjala er að finna í héraðskjalasöfnum landsins. Hér á vefnum gefst kostur á að skoða skrár yfir slík söfn, en hafa ber í huga að hér er ekki um að ræða tæmandi lista yfir einkaskjalasöfn í fórum viðkomandi safna. Þess skal og getið að ekki höfðu öll héraðsskjalasöfn tök á að senda lista til birtingingar hér á vefnum; það þýðir ekki að þau geymi ekki einkaskjalasöfn. Áhugamenn um persónusögu og einkaskjalasöfn eru því hvattir til að beina þekkingarleit sinni til allra skjalasafnanna.