Þjóðskjalasafn Íslands og
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Þjóðskjalasafn Íslands sameinast um dagskrá sem fram fer í húsakynnum Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 og bjóða til samstarfs nokkrum völdum aðilum.
Fyrirlestrar
Haldnir verða sex 15-20 mínútna fyrirlestrar í samkomusal á 3. hæð, kl 11:00-15:00, sem hér segir:
| Tími | Fyrirlesari | Efni |
| 11:00 | Kristrún Halla Helgadóttir | Ættfræðigrunnurinn Íslendingabók - kynning |
| 11:30 | Hrefna Róbertsdóttir | Franz Illugason vefari stígur fram |
| 12:00 | Svanhildur Bogadóttir | „Brenndu þennan snepil að lestri loknum“ |
| 13:00 | Þórunn Guðmundsdóttir | „Ég svara fyrir mínar sakir sjálf“ |
| 13:30 | Valur F. Steinarsson | Allt um mig, frá mér til mín |
| 14:00 | Eiríkur G. Guðmundsson | Jón Hreggviðsson í opinberum skjölum |
Skoðunarferðir í skjalageymslur
Gestum er boðin leiðsögn um skjalageymslur kl. 12:30 og kl. 14:30. Lagt er af stað úr anddyri.
Kynningar
Þjóðskjalasafn og Borgarskjalasafn kynna starfsemi sína í skrifstofurými á 3. hæð. Sögufélag, Ættfræðifélagið og ORG ættfræðiþjónusta kynna starfsemi sína í anddyri og stigagangi. Bækur, kort og plaköt til sölu.
Veitingar
Kaffi og kleinur, kakómjólk og djús í skrifstofurými á 3. hæð.
Getraun
Bæði börn og fullorðnir geta tekið þátt í getraun. Dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun veitt.
Sýningar
Sýning á skjölum og myndum tengd persónuheimildum verður opin kl 14:00-17:00 á skjaladeginum í Safnahúsinu að Bjarnarbraut 4-6. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri
Héraðsskjalasafnið á Akureyri tekur þátt í Norræna skjaladeginum með því að senda inn upplýsingar um einkaskjalasöfn og efni um persónuheimildir á vefinn skjaladagur.is. Engin formleg sýning verður í tilefni Norræna skjaladagsins, en vikuna eftir, þ.e. 12. – 16. nóvember munu liggja frammi á safninu sýnishorn af persónuheimildum og einkaskjalasöfnum og skjalaverðir munu svara spurningum sem kunna að vakna um það efni á opnunartíma safnsins.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Ekki verður opið á skjaladeginum, en hinsvegar á sunnudeginum 11. nóvember frá kl. 14:00-16:00. Þar verður svart kaffi á könnunni og Arndís segir fólki frá skjaladagsvefnum og forvitnilegum einkaskjalasöfnum á Héraðsskjalasafni Austfirðinga.
Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
Laugardaginn 10. nóvember mun safnafólk í Vestmannaeyjum standa fyrir „Nótt safnanna“. Norræni skjaladagurinn 2007 verður hluti af dagskrá dagsins.
Þema dagsins er að þessu sinni „Mannlíf í skjölum“ (Mennesket i arkivet), sem höfðar til fjölda fólks með áhuga á persónusögu. Norræna bókasafnavikan „Í ljósaskiptunum“ sem haldin er 12. - 17. nóvember hefur þetta árið þemað „Konan í Norðri“.
Í tilefni „Konunnar í Norðri“ verður í samvinnu við Bókasafn Vestmannaeyja sett upp sýning á dagbókarbrotum og ljósmyndum úr fórum Agnesar Matthilde Adalheide Grandjean Aagaard, sýslumannsfrúar í Vestmannaeyjum 1874-1891. Héraðsskjalasafni Vestmannaeyja bárust dagbókarbrot hennar frá Eyjum til varðveislu frá sonardóttur hennar í Danmörku Ebbu E.L. Aagaard, lyfjafræðingi árið 1994.
Safnahúsið verður opið þennan dag frá kl. 11:00 til 18:00 og allir eru velkomnir.
Héraðsskjalasafn Árnesinga
Sýning á einkaskjölum Péturs M. Sigurðssonar, sem opnuð var 15. júní 2007, verður opin til næsta vors á venjulegum opnunartíma safnsins. Hún verður ekki opin sérstaklega á skjaladaginn.
