Fasteignamatsskrár


Heiti heimildar: Fasteignamatsskrár

Tímabil: 1916-

Tilurð: Árið 1915 voru sett lög um fasteignamat. Allar jarðeignir, lóðir og hús skyldu metin til verðs og fór fyrsta mat fram árin 1916-1918. Hreppstjórar og bæjarfógetar áttu að rita skýrslu á þar til gerð eyðublöð frá stjórnarráði um jarðir, lóðir, húseignir, mannvirki, umbætur og hlunnindi, landamerki o.fl. og senda þær formanni fasteignamatsnefndar viðkomandi sýslu. Skýrslurnar voru sendar til yfirmatsnefndar sýslunnar og þaðan til stjórnarráðs. Þetta matsmannakerfi hélst tiltölulega lítið breytt þar til Fasteignamat ríkisins var sett á stofn árið 1976. Þar hefur nú verið komið á fót Landskrá fasteigna, þar sem fasteignaskrár og þinglýsingabækur eru samþættar í einn gagnagrunn.

Upplýsingar:

Aðgangur: Án takmarkana, með fyrirvara um ástand skjala.

Safn: Héraðsskjalasöfn, Þjóðskjalasafn.

Tilvísun í hvaða skjölum eða hjá hvaða embættum má finna sömu upplýsingar eða hliðstæðar: Finnst einnig hjá Landskrá fasteigna, Fasteignamati ríkisins.



asd
Fasteignamatsskrá frá 1917.

asd
Fasteignamat 1942.

Efni síðunnar kemur frá: Héraðsskjalasafninu á Akureyri.