Héraðsskjalasafnið á Akureyri Héraðsskjalasafnið á Akureyri.

Héraðsskjalasafnið á Akureyri
 

Héraðsskjalasafnið á Akureyri

Brekkugötu 17
600 Akureyri
Sími: 460 1290
Fax: 460 1291
Rafpóstur 1
Rafpóstur 2
Vefsetur

Afgreiðslutími:
Mánudaga og fimmtudaga 10-18 og þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga 10-16.

Héraðsskjalasafnið á Akureyri var stofnað 1. júlí 1969. Hlutverk safnsins er söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda héraðssögunnar, til notkunar fyrir stjórnsýslu, stofnanir og einstaklinga. Þetta er gert til þess að tryggja hagsmuni og réttindi þeirra, og til notkunar við vísindalegar rannsóknir og fræðiiðkanir. Umdæmi safnsins nær yfir öll sveitarfélög við Eyjafjörð að undanskilinni Dalvíkurbyggð. Á safninu er veitt almenn ráðgjöf við notkun skráðra heimilda, safngestir á lestrarsal njóta leiðbeininga og aðstoðar, auk þess sem boðin er upplýsingaþjónusta og heimildaleit fyrir stjórnsýslu og almenning.

Héraðsskjalavörður er Aðalbjörg Sigmarsdóttir.