Heiti heimildar: Úttekta-, uppskrifta- og uppboðsbækur
Tímabil: Úttektir og uppboð hafa farið fram frá fornu fari, líklega er ein elsta slík gjörð fjárskiptin í Kirkjubæ sumarið 1250, sem frá segir í Svínfellingasögu, sbr. Sturlungu, útgáfan frá 1946, bls. 95 í II. bindi. Slík gögn eru til á Þjóðskjalasafni frá 17. öld og nánast allt til dagsins í dag.
Tilurð: Hreppstjórar skyldu færa úttektarbækur, skv. Instruktion for Repsstyrerne i Island (Hreppstjórainstruxið) frá 24. nóvember 1809 og síðari tilskipunum. Í úttektarbækur er skráð um húsakynni á leigujörðum og mat á endurbótum eða því sem á vantaði viðhald þeirra, einnig um leigukúgildi eða innistæðukúgildi viðkomandi jarða og er þá átt við þann kvikfénað, oftast ær, sem fylgdu hverri leigujörð. Úttektir voru gerðar við ábúendaskipti og þegar skemmdir urðu á jörð eða húsum vegna náttúruhamfara og afgjaldið af þeim þá stundum lækkað. Núgildandi lög um úttektir eru frá 9. júní 2004.
Upplýsingar:
Í uppskriftabækur var fært um eignir dánarbúa og mat á þeim, sem síðar var lagt til grundvallar búskiptum, en stundum undanfari uppboðs á reitum viðkomandi. Ef í hlut áttu stóreignamenn eru uppskriftirnar stundum mjög langar, jafnvel heilar bækur, en bú fátæklinga komust oft fyrir á einni eða tveimur blaðsíðum. Þessar uppskriftir eru oft mjög nákvæmar því allar eignir viðkomandi virðast tíndar til.
Uppboðsbækur eru þingbækur uppboðsréttar hreppstjóra og sýslumanna og í þær fært það sem gerist vegna uppboða. Þar er það sem bjóða á upp og selja tíundað, nöfn kaupenda og söluandvirðið. Greint er á milli frjálsra uppboða og nauðungaruppboða. Frjáls uppboð eru yfirleitt haldin að ósk eiganda (uppboðsþola) en nauðungaruppboð að ósk skuldheimtumanna (uppboðsbeiðanda). Með úttektar- og uppboðsmálum eru oft margvísleg fylgiskjöl sem vanalega eru færð í sérstakan flokk í skjalasöfnum.
Þessar heimildir gefa góðar upplýsingar um byggingar, innréttingar þeirra og innanbúnað, klæðnað, búshluti og aðrar eigur fólks.
Aðgangur: Takmarkað í 80 ár, nema fyrir viðkomandi aðila.
Safn: Héraðsskjalasöfn, Þjóðskjalasafn.
Tilvísun í hvaða skjölum eða hjá hvaða embættum má finna sömu upplýsingar eða hliðstæðar:
Efni síðunnar kemur frá: Þjóðskjalasafni Íslands.