Til hvers erum við með Þjóðskjalasafn?

Í Þjóðskjalasafni Íslands eru nú varðveittir meira en 30 km af skjölum ef mælt er í hillulengd.

Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir frumrit skjala sem orðið hafa til við opinbera stjórnsýslu í landinu hverju nafni sem þau nefnast. Það er ríkisskjalasafn og er öllum stofnunum ríkisins, fyrirtækjum, félögum sem njóta opinberra styrkja og öllum embættum skylt að skila til safnsins skjölum sínum sem orðin eru 30 ára gömul. Þessir aðilar eru nú um 1000 talsins. Á sama hátt er sveitarfélögum skylt að varðveita skjöl sín og afhenda þau Þjóðskjalasafni til varðveislu, nema þau reki héraðsskjalasafn sem annast þá þetta hlutverk.

Hlutverk Þjóðskjalasafns er ekki síst að tryggja öryggi þegnanna með því að geyma á tryggan hátt mikilvæg gögn sem snerta réttindi ríkis, sveitarfélaga, og þegna landsins. Oftast er um að ræða gögn sem hafa mikið réttarfarslegt gildi auk þess að vera mikilvægar sögulegar heimildir. Íslenskt samfélag hefur tekið gagngerum breytingum á þessari öld. Það leiðir hugann að því hversu mikilvægt það er að vanda til varðveislu þeirra heimilda sem 20. öldin hefur myndað.

Þjóðskjalasafn er jafnframt rannsóknarstofnun í íslenskri sögu og skjalfræðum sem annast söfnun heimilda um sögu þjóðarinnar innan lands og utan. Starfsmenn safnsins semja skrár um skjalasöfn þau sem í safninu eru og leiðbeiningar um heimildir þær sem í safninu liggja. Rannsóknir á vegum safnsins tengjast fyrst og fremst sagnfræði og skjalfræði og liggur beint við að þær snúist að verulegum hluta um stjórnsýslusögu og sérstök skjalfræðileg viðfangsefni auk þess sem veita þarf ítarleg svör við fræðilegum fyrirspurnum. Sem dæmi um það má nefna störf Þjóðskjalasafns fyrir Óbyggðanefnd vegna úrskurða um þjóðlendur.

Þjóðskjalasafn annast ráðgjöf til stofnana varðandi alla opinbera skjalavörslu um meðferð þeirra skjala sem ekki hefur enn verið skilað. Það gefur út leiðbeiningar um skjalavörslu og stendur að námskeiðum fyrir skjalaverði stofnana. Ennfremur hefur Þjóðskjalasafn annast kennslu í skjalfræði í heimspekideild Háskóla Íslands og námskeið fyrir héraðsskjalaverði. Þessir þættir starfseminnar og almenn þjónusta á sviði upplýsinga fer ört vaxandi.