Ég er með skjöl frá ungmennafélaginu í gömlu sveitinni minni hérna hjá mér. Hvað á ég að gera við þau?

Auk skjala opinberra stofnana varðveita opinber skjalasöfn eins og Þjóðskjalasafn, Borgarskjalasafn og héraðsskjalasöfn skjöl frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum. Ef þú hefur undir höndum skjöl eða veist um skjöl sem ættu erindi á safn, getur þú haft samband við starfsmenn skjalasafns, sem munu meta skjölin, þ.e. hvort ástæða sé til að varðveita þau. Eðlilegast er að fara með þau á það safn sem næst er gömlu sveitinni þinni, en að öðrum kosti koma með þau á Þjóðskjalasafn Íslands.