Hvaða skjöl get ég fundið á skjalasafni?

Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfnin um land allt eru opinber söfn, þar sem meginhlutverkið er að varðveita skjöl frá opinberum aðilum sem undir þau heyra. Héraðsskjalasafnið í Vestmannaeyjum varðveitir til dæmis skjöl frá nefndum, stofnunum og fyrirtækjum Vestmannaeyjabæjar, Borgarskjalasafnið í Reykjavík varðveitir skjöl Reykjavíkurborgar og Þjóðskjalasafn varðveitir skjöl ríkisstofnana um land allt og sömuleiðis frá þeim sveitarstjórnum sem ekki eru aðilar að héraðsskjalasafni.

Skjalasöfnin taka einnig til varðveislu skjöl frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum á safnasvæðum sínum. Þjóðskjalasafnið einbeitir sér einkum að félögum sem starfa á landsvísu, stærri fyrirtækjum og þekktum einstaklingum, t.d. stjórnmálamönnum.