Hvað er skjal?
Hugtakið skjal hefur víðtæka merkingu. Í lögum um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66 27. júní 1985 segir að skjöl séu "hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og orðið hafa til við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings hvort sem um er að ræða skrifleg gögn, uppdrætti, ljósmyndir, filmur, örglærur, hljóðupptökur, gataspjöld, segulbönd eða önnur hliðstæð gögn". Algengar gerðir skjala eru tölvupóstar eða sendibréf.
Munurinn á skjali og prentuðu efni, er að skjalið er yfirleitt einungis til í einu eintaki en prentað efni í fjölda eintaka. Skjalið er því oft einstakt og verður ekki bætt ef það tapast, sama á hvaða formi það er. Skjal getur haft lagalegt, fjármálalegt og sögulegt gildi. Það getur haft mikið gildi fyrir einstakling og sannað rétt hans eða þess aðila sem skjalið fjallar um.