Söngskrá Karlakórsins Geysis Söngskrá Karlakórsins Geysis úr Ítalíuferðinni.


Afmælispeningur ÍBA Afmælispeningur ÍBA.





1974
Eyjafjörður og Akureyri
Annáll

Af félögum:

Góðtemplarareglan fagnaði 90 ára starfsafmæli sínu með hátíðarfundi og skemmtunum í upphafi árs og stúkan Brynja varð 70 ára í júlí.

Kvenfélagið Framtíðin varð 80 ára og afhenti Elliheimilum bæjarins 1 milljón króna af því tilefni.

20. janúar voru stofnuð samtök á Akureyri um að hrinda af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað er á Alþingi og ríkisstjórn að hverfa frá uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin og brottför hersins. 2. febrúar var stofnuð Akureyrardeild Samtaka herstöðvarandstæðinga.

Lionsklúbbur Akureyrar afhenti Vistheimilinu Sólborg peninga til þess að klára umferðarleikvöll á lóð heimilisins. Leikvöllurinn var hugsaður sem smækkuð mynd af bæjarfélagi, með þjónustustofnunum, verslunum, lögreglustöð o.fl. en ökutækin væru þríhjól, reiðhjól og jafnvel vélknúnir bílar.

Þórsarar féllu niður í 2. deild í Íslandsmótinu í handknattleik en þar voru KA menn fyrir. Um sumarið var gerður nýr knattspyrnuvöllur Þórsara norðan við Glerárskóla.

Ungmennafélag Svarfdæla sigraði á Héraðsmóti UMSE í frjálsum íþróttum en Ungmennafélagið Reynir sigraði á knattspyrnumóti UMSE.

Samband norðlenskra kvenna hélt aðalfund sinn í Hrafngilsskóla 10.-11. júní. Sambandið varð 60 ára á árinu.

Kiwanisklúbburinn Kaldbakur, Lionsklúbbarnir Hængur, Lionsklúbburinn Huginn og Lionsklúbbur Akureyrar færðu Fjórðungssjúkrahúsinu magamyndavél í tilefni 100 ára afmæli þess.

Karlakórinn Geysir fór í söngferð til Ítalíu í september.

Hrútasýningar voru haldnar í öllum hreppum á svæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar um haustið. Margt góðra hrúta kom á þessar sýningar og voru þær yfirleitt vel sóttar. Alls voru sýndir 677 hrútar.

Lionsklúbburinn Hængur gaf öllum sex ára börnum á Akureyri endurskinsmerki en 7, 8, og 9 ára börn fengu endurskinsmerki frá Flugbjörgunarsveitinni.

Dýraverndunarfélag Akureyrar var stofnað 22. september, Geðverndarfélag Akureyrar var stofnað 16. nóvember og Íþróttafélag fatlaðra var stofnað í desember. Íþróttabandalag Akureyrar átti 30 ára afmæli 20. desember.

Félagið HÍRÓN (Hin Íslenska Rannsóknarstofnun Óþekktra Náttúrufyrirbæra) var stofnað á haustdögum á Akureyri. Þetta var félag áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og dulræn fyrirbæri og tilgangur félagins að safna upplýsingum um efnið og vekja áhuga almenninga á því.