Fannfergi Fannfergi í febrúar.











Ólafur V. Noregskonungur heimsótti Akureyringa 6.júní
Ólafur V. Noregskonungur heimsótti Akureyringa 6.júní.


Sprenging í Löngumýri Sprenging í Löngumýri 20 á Akureyri.






Unnið að uppsetningu skíðalyftunnar við Stromp
Unnið að uppsetningu skíðalyftunnar við Stromp.



1974
Eyjafjörður og Akureyri
Annáll

Atvinnumál og almennar fréttir:

Í byrjun árs voru lagðar fram tillögur erlendra sérfræð-inga um hvernig mætti bjarga hafnarmannvirkjunum við Strandgötu. Framkvæmdir við nýja vöruhöfn hófust árið 1969 en þegar mannvirkin byrjuð að síga voru framkvæmdir stöðvaðar. Drjúgan hluta ársins 1974 var unnið að frekari rannsóknum og mælingum í tengslum við vöruhöfnina. Um haustið voru framkvæmdir hafnar að nýju enda höfðu mælingar sýnt að burðarþol stauranna undir bryggjuna væri meira en talið var í upphafi og dregið hafði úr sigi.

Prentarar og verslunar- og skrifstofufólk fóru í verkfall.

Nýr snjótroðari kom til bæjarins í ársbyrjun, sá fyrsti sem keyptur var til landsins.

25. janúar kom nýr eikarbátur, Múli, til Ólafsfjarðar og í september fengu Ólafsfirðingar nýjan skuttogara er Sólberg kom til heimahafnar.

Helgina 9.-10.febrúar gekk mikil norð-austan stórhríð yfir Norður- og Vesturland. Mikinn snjó setti niður og lokuðust allir vegir og allar götur í bæjum. Margir rafmagnsstaurar brotnuðu og a.m.k. fimm snjóflóð féllu á leiðinni frá Svalbarðsströnd til Grenivíkur. Einnig var talsvert um skemmdir í Öxnadal og á Ólafsfirði. Það fór eins og svo margir óttuðust að þegar gerði hláku þá varð vatnselgur til vandræða. Á Akureyri flæddi vatn víða inn í kjallara húsa og olli skemmdum. Á tímabili var ekki gangfært um Ráðhústorg vegna vatns og lækurinn í innbænum, sem hafði fyrir löngu fengið það hlutskipti að renna neðanjarðar, brá á leik á yfirborðinu, íbúunum til hrellingar.

Framkvæmdir við viðbyggingu Fjórðungssjúkrahússins hófust.

Gagnfræðingar frá Akureyri flugu með þotu frá Akureyri til Norður-Ítalíu 22. maí. Þetta var fyrsta þotuflug frá Akureyri beint til útlanda.

Bæjarstjórn samþykkti nýtt aðalskipulag fyrir bæinn.

Það voraði óvenjuvel og samkvæmt mælingum var hiti á Akureyri 5,1 gráðu yfir meðallagi í apríl og var það hlýjasti apríl mánuður aldarinnar. Í júní fór hitinn á Akureyri í 29,4 og í október var slegið met í sólskinsstundum.

Akureyringar kusu nýja bæjarstjórn 26. maí. Framsóknarmenn fengu 3 fulltrúa (höfðu áður 4), Sjálfstæðisflokkurinn fékk 4 fulltrúa (höfðu áður 3), Alþýðubandalag fékk 1 fulltrúa (óbreytt) og Jafnaðarmenn (Alþýðuflokkur og Samtök frjálslyndra) 2 fulltrúa.

6. júní heimsótti Ólafur V. Noregskonungur Akureyringa, ásamt forseta Íslands og frú, utanríkisráðherra og ýmsum öðrum opinberum gestum. Á flugvellinum tóku helstu fyrirmenn á móti gestunum og fólk úr kórum bæjarins söng við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Kóngurinn skoðaði bæinn, bæði í bíl og gangandi og um kvöldið var honum haldin veisla á Hótel-KEA.

Geðdeild tók til starfa við Fjórðungssjúkrahúsið og göngudeild handlæknisdeildar flutti í nýtt húsnæði í Hafnarstræti.

Flugfélag Íslands hóf áætlunarflug milli Akureyrar og Ísafjarðar í júní.
 
Aðfararnótt 12. júlí varð mikil sprenging í Kjötiðnaðarstöð KEA. Sex til átta lesta vatnsgeymir í suðurhluta hússins sprakk, þeyttist gegnum tvo hlaðna steinveggi og skall á útvegg stöðvarinnar og braut hann. Á leið sinni braut geymirinn vélar og tæki í aðalvinnslusal stöðvarinnar. Í ágústbyrjun hófst framleiðsla á kjötfarsi, pylsum og sperðlum að nýju og í nóvember voru flest allar vörutegundir komnar í framleiðslu aftur, þótt fullum afköstum væri ekki enn náð.

Um sumarið bar nokkuð á kúadauða við Eyjafjörð. Blóðkreppusótt var þar um að kenna. Veikin kom einna harðast niður í Glæsibæjarhreppi.

Um sumarið var ruddur vegur fram Eyjafjarðardal, frá Hólsgerði inn dalinn og upp á fjallsbrún við Nýjabæ.

Kartöfluppskera var með ágætum.

Íbúðarhúsið Löngumýri 20 eyðilagðist í sprengingu að morgni 27. september. Húsið var mannlaust og slys urðu ekki á fólki þrátt fyrir að brak hússins bærist um næsta umhverfi og skemmdi önnur hús. Talið var að sprengingin hafi orðið í hitavatnsgeymi í kjallara hússins. 29 dögum eftir að ósköpin dundu yfir var búið að steypa upp nýtt hús og langt komið með að setja á það þak.

Í október fengu Ólafsfirðingar nýjan sjúkra- og lögreglubíl af chevrolet-gerð, með framdrifi, klæddan að innan með skinnlíki og með bólstruðum sætum. Fréttamönnum sjónvarps og blaða var boðið í stutta ökuferð í bifreiðinni. Var ekið út að Flagi og til baka. Rómuðu allir styrkleika og hraða bifreiðarinnar.

Um haustið hófst skipulögð heimilisþjónusta og heimahjúkrun á Akureyri.

Ný skíðalyfta var sett upp í Reithólum við Stomp í Hlíðarfjalli. Nýja lyftan var um 530 metra löng og hæðarmismunur 200 metrar og afköst á klst. um 350 manns.

Nýi Kaldbakur kom til heimahafnar rétt fyrir jól. Á Torfunefsbryggju var móttökuathöfn í norðaustan kalda, hríð og 8 stiga frosti. Stórhríðarveður var um allt land. Víða bárust fregnir af samgönguerfiðleikum. Á Norðurlandi bættist óvissan í raforkumálum við erfiðleikana. Jaðraði við rafmagnsskömmtun á orkuveitusvæði Laxár og fólk var beðið um að spara raforkuna eftir mætti, eins og svo oft áður.

Endurbætt Lindusúkkulaði kom á markað fyrir jólin.