Dagskrá þjóðhátíðarinnar í Reykholti - forsíða Dagskrá þjóðhátíðarinnar í Reykholti - forsíða.


Dagskrá þjóðhátíðarinnar í Reykholti Þjóðhátíðin í Reykholti - dagskrá og söngskrá.
Smellið á myndina til að skoða stærri mynd.




Þjóðhátíðin í Reykholti 6. júlí 1974

Ásgeir Pétursson sýslumaður setti hátíðina með ræðu. Hann minntist landnámsins og þeirra Egils og Snorra, og lýsti síðan hátíðina gengna í garð.Á eftir ræðunni flutti Böðvar Guðmundsson þjóðhátíðarljóð föður síns Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli.

Jón Helgason, rithöfundur frá Stóra-Botni flutti þá hátíðarræðu og minntist landnáms og landvistar í ellefu hundruð ár.Því næst flutti Ingibjörg Ásgeirsdóttir, kennari í Borgarnesi, ávarp fjallkonunnar, Minni Ingólfs eftir Matthías Jochumsson. Að því loknu afhjúpaði hún listaverkið Þingvellir eftir Jóhannes S. Kjarval sem var gjöf til héraðsins frá Mýrasýslu, Borgarfjarðarsýslu, Sparisjóði Mýrasýslu, Borgarneshreppi og Kaupfélagi Borgfirðinga. Listaverkið sýnir Þingvelli, Almannagjá og Öxárfoss, og Botnssúlur gnæfa í baksýn. Ramminn er einnig listaverk.Hann er gerður af norskum listamanni úr norskum við og er því sprottinn úr sama jarðvegi og íslensku landnámsmennirnir.

Samkór Borgfirðinga og Akurnesinga söng nokkur ættjarðarlög. Stjórnendur kórsins voru Haukur Guðlaugsson, Ólafur Guðmundsson og Guðjón Pálsson. Þórir Þórisson stjórnaði Lúðrasveit Akraness sem spilaði á milli atriða. Síðan sýndi Þjóðdansafélag Reykjavíkur þjóðdansa. Víkverjar í Reykjavík sýndu glímu undir stjórn Kjartans Bergmanns frá Flóðatanga. Síðastir á dagskránni voru Ómar Ragnarsson skemmtikraftur með gamanmál og Magnús Ingimarsson píanóleikari lék undir.Að þessu loknu sleit Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, hátíðinni með ræðu.

Hátíðin var haldin í hinu besta veðri og átti hún að hefjast klukkan tvö en þá var enn löng bílalest á leiðinni og var því beðið í nokkra stund með að setninguna . Lúðrasveitin lék á meðan fyrir samkomugesti. Hátíðinni var slitið klukkan sex síðdegis. Kynnir var Friðjón Sveinbjörnsson og voru gestir á fjórða þúsund. Í nefndinni sem undirbjó hátíðarhöldin voru Ásgeir Pétursson sýslumaður, Sigurður R. Guðmundsson skólastjóri og Friðjón Sveinbjörnsson sparisjóðsstjóri.

Heimildir: Indriði G. Þorsteinsson. 1986. Þjóðhátíðin 1974. Ellefu hundruð ára afmæli Íslandsbyggðar 874-1974. II. bindi, bls. 110-121.