Dagskrá þjóðhátíðar 17. júní 1974 í Kópavogi.
Kópavogsbúar létu ekki sitt eftir liggja við að minnast ellefu hundruð ára afmælis Íslandsbyggðar. Auk venjulegs hátíðarhalds 17. júní fóru hátíðarhöld fram 21. júlí 1974. Myndarleg skrúðganga gekk frá Víghólaskóla vestur Digranesveg og Borgarholtsbraut að Rútstúni þar sem vegleg hátíðarhöld fóru fram. Fyrir göngunni gekk flokkur kvenna úr fimleikafélaginu Gerplu ásamt skólahljómsveit Kópavogs.
Hátíðahöld á Rútstúni hófust með helgistund þar sem séra Þorbergur Kristjánsson messaði og kirkjukór söng. Síðan setti Sigurður Helgason, forseti bæjarstjórnar, hátíðina, félagar úr Gerplu sýndu fimleika og júdó og félagar úr Breiðabliki sýndu glímu í umsjá Lárusar Salómonssonar. Þá sýndi Þjóðdansafélag Reykjavíkur þjóðdansa og Hornaflokkur Kópavogs og Skólahljómsveit Kópavogs léku og með þeim sungu Guðmundur Jónsson og Magnús Jónsson. Kynnir var Þorsteinn Hannesson.
Á Rútstúni fór einnig fram kynning á íslenska hestinum í gegnum söguna þar sem hestamannafélagið Gustur var með lestarferð í kaupstað að fornum sið. Um kvöldið var svo stiginn dans á Rútstúni við undirleik hljómsveitar Ragnars Bjarnasonar og þar komu einnig fram skemmtikraftarnir Ómar Ragnarsson og Karl Einarson. Loks var klykkt út með mikilli flugeldasýningu sem Hjálparsveit skáta í Kópavogi hafði umsjón með.