Opið hús í Þjóðskjalasafni Íslands á norrænum skjaladegi 12. nóvember frá kl 12:00 til 16:00.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Kl 12:00Húsið opnar. Sýning á margvíslegum skjölum sem tengjast viðskiptum fyrri alda. Elsta skjalið er skinnskjal frá 15. öld.
Kl 12:15Skrifað undir viljayfirlýsingu um afhendingu á skjölum Hf. Eimskipafélags Íslands og Burðaráss til Þjóðskjalasafns.
Kl 13:00Eiríkur G. Guðmundsson settur þjóðskjalavörður: Opnun dagskrár og skjaladagsvefjar.
Erindi:
Kl 13:05Benedikt Eyþórsson sagnfræðingur: Verslunarsöguheimildir í Þjóðskjalasafni Íslands.
Kl 13:20Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur: Voru innréttingarnar góð viðskiptahugmynd?.
Kl 13:45Kaffihlé
Kl 14:00Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur: Saga hrunsins á neti, bloggi og fésbók. Ný sýn eða truflandi suð?.
Kl 14:30Jóhanna Guðmundsdóttir sagnfræðingur: Brennisteinn og byssupúður. Framlag Íslands til hergagnaframleiðslu Danakonungs.

Annað

  • Sérfræðiráðgjöf um einkaskjöl og vörslu þeirra.
  • Sýning á margvíslegum skjölum sem tengjast viðskiptum fyrri alda.
  • Elsta skjalið er skinnskjal frá 15. öld.
  • Sögufélag verður með bóksölu á staðnum.
  • Getraun, veitingar og fullt af skemmtilegu fólki.


Norræni skjaladagurinn 12. nóvember 2011